KlukkedíklukkSigný Ósk Sigurjónsdóttir
Jæja nú fékk ég allt í einu löngun til að tjá mig hér.Arna klukkaði mig..
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Ólafshús, Hagkaup Smáralind, Formaco og Síminn
Fjórar bíómyndir:
LOTR eru bestar og svo eru fullt af einhverjum öðrum myndum sem maður gleymir um leið ogmaður er búinn að sjá þær..
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Fellstún 1, Torfufellið, Laufengið og Smyrlahraunið:)
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Grey's Anatomy, Chuck, Army wives oog... Boston Legal
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Holland, Spánn, Tyrkland og Þýskaland
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan bloggið:
mbl, myschool og bloggrúnturinn
Fernt sem ég held uppá matarkyns:
Gæs, hamborgarhryggur, nautakjöt og humar
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:
Harry Potter, allt eftir Þorgrím Þráinsson:), Flugdrekahlauparainn og Lagasafnið;)
Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna:
Í Fellstúni 1 með allri fjölskyldunni fyrir svona 5 árum, á Tyrklandi með Jóhanni og svo bara einhversstaðar með allri familíunni!
Fjórir bloggarar sem ég klukka:
Hmmm... Nína, Sigurbjörg, Mamma og Ragnhildur
Það er annars allt gott að frétta og allt gengur vel!:) Á eflaust eftir að rita hér nokkur orð af og til... Ætla að fara að slappa af með meiru núna:)
FríSigný Ósk Sigurjónsdóttir
Já ég er sjúk í frí. Ég elska að vera í fríi! Eins og svo margir..En núna er ég að vinna og það er ekkert að gera! Leiðist alveg ótrúlega mikið, get ekki einu sinni talað við neinn. Enginn að vinna með mér sem ég þekki og enginn á msn.
Já þetta verður nú ekkert skemmtilegt blogg get ég sagt ykkur. Ég hef ekki margt að segja.
Ég var samt í fríi síðustu helgi og við Jóhann héldum norður, vorum þar í heila fimm daga og það var æðislegt!
Hitti stelpurnar voða mikið og auðvitað var haldið á djammið á laugardeginum, það var alveg sjúkt gaman sko! Við stelpurnar + Stefán erum náttúruleg bara skemmtileg, þó að það hafi vantað Brynhildi algjörlega!
Mér finnst ekki gaman í vinnunni þegar Rakel er ekki hér. Ég er einmana.
Anna Lóa er svo hress að henni finnst ég auli, það er gaman af því. Heilsist henni.
Jájá þetta var aðalega gert fyrir Sólveigu Rögnu, ég segi bara bless við hálskirtlana hennar og batni þér vel!
Jæja nóg af leiðinlegu rugli..
Ætla að halda áfram að gera ekki neitt.
FíneríSigný Ósk Sigurjónsdóttir
Komiði öll sæl og blessuðÉg er að fara á árshátíð í dag. Sem er ekki frásögu færandi nema hvað að þetta er alveg voða mikið mál. Ég er til dæmis alveg óþekkjanleg. Ég er nefnilega ekki eins og ég hafi verið dregin upp úr flórnum, til tilbreytingar. Ég fékk mér neglur - voða fín. Lét plokka og lita augabrúnirnar mínar - þvílíkur léttir
Núna er ég að vinna og verð að vinna alveg til fjögur og þá þarf ég að hafa hraðann á. Skjótast inn í Hafnarfjörð í sturtu og allt það og svoo ætlar Signý að fara í förðun, já maður má ekki vera minni en sá sem situr við hliðina á sér, seiseinei! Já en þetta verður voða gaman. Ég er voðalega andlaus, er ekki að nenna að vera í vinnunni en maður verður að láta sig hafa það..
dædædæ
0 á biđ - ţannig á lífiđ ađ veraSigný Ósk Sigurjónsdóttir
Já hér sit ég í vinnunni minni og læt mér leiðast. Þetta eru búnir að vera undarlegir tveir dagar.. voða rólegt og gott - 7(bank), 9(bank), 13(bank).Helena er farin úr vinnunni.. hún er að fara til Tenerife á morgun, ég öfunda hana ótrúlega mikið en vona um leið innilega að hún skemmti sér óendanlega vel!!
skemmtu þér vel!!Já hvenær kemur kreppan? Mér finnst ekki skrítið að spyrja, það er allt að fara til fjandans. Og það sem meira er hver ætlar að gera eitthvað í því?? Enginn sínist mér, aðallega örugglega vegna þess að þeir sem gætu gert eitthvað í þessu græða bara og græða. Já hvert fer þetta með okkur. Þegar svo er ástatt langar mig ekki að búa á Íslandi. Þetta er einhvernveginn svo óendanlega svart og leiðinlegt - kæfir alla möguleika á góðu lífi, sérstaklega fyrir okkur menntafólkið sem á engan pening.
Bifreiðagjöld?? Getur einhver réttlætt það að Signý Ósk borgi 12.000 krónur fyrir Yaris sem er léttari en 900 kg. Hvert fara þessir peningar? Ekki erum við að bæta vegina, það veit það hver maður sem keyrir norður öðru hvoru, íslenska vegakerfið suckar!! Þetta er til skammar! Langar bara að vita hvert þessir peningar fara??
MS lyfið. Er ekki allt í lagi?? Væri nú ekki betra að lækka launin hjá þessum háttsettu *íflum og borga frekar lyf MS sjúklinga sem þurfa á því að halda. Ég meina það!! Hvað er að? Þetta er fólk sem er veikt og við getum hjálpað því en nei! það er of dýrt! Ég segi nú bara, það er of dýrt fyrir Ísland að hafa forseta og aðra háttsetta jakkafatamenn sem gera ekki rassgat nema klúðra málunum!!
Af hverju látum við allt yfir okkur ganga?? Matvöruverð er upp úr öllu valdi! En samt fara allir Íslendingar og kaupa vörurnar á þessu háa verði.. Ekkert mál - hættiði þá að væla! Þoli ekki að það sé hægt að valta svona yfir okkur! Verðbólgan í 6,8 og eitthvað..
En já nóg um það.. úff
dúddamía, Arna er að fara að halda upp á afmælið sitt um helgina og ég næ vart andanum fyrir spenningi. Úfff það verður svo ótrúlega gaman, það er langtlangt síðan að ég hef hlakkað svona mikið til!!
Ég er að fara í 4 daga frí og ég get ekki beðið, það verður mjög indælt!
Jæja best að fara að láta mér leiðast aðeins meira..
Ykkar einlæg
Já hvađ haldiđ ţiđ..Signý Ósk Sigurjónsdóttir
Halló halló:)Mikið var ég búin að sakna að drita niður nokkrum vel völdum orðum.
Það er ágætt að geta létt á sér aðeins og kastað kveðjum öðru hverju. Nú er ég hins vegar alveg viss um að enginn lesi þetta en það er nú ekki það sem skiptir öllu máli, seiseinei. Það er svo ótrúlega margt búið að gerast síðan að ég bloggaði síðast að það er eiginlega ekki hægt að ná því öllu á blað.
Ég fór til Marmaris með Jóhanni mínum og það var hreint út sagt æðislegt!! Geggjað mikill hiti og æðislegt veður barasta, skemmtilegt út í gegn!
Ég kláraði skólann og útskrifaðist 22. desember 2007. Mér gekk mjög vel og hélt smá veislu.. vantaði all marga í hana en það komu alveg nógu margir

Ég hélt jólin hátíðleg með fjölskyldunni. Önnur jólin mín án Árna Viggós og það vantaði mikið! Það vantaði náttúrulega Nínu líka og þá var skarðið orðið allt of stórt. En ég fékk að hafa Jóhann þannig að þetta var mjög fínt. Var fyrir norðan í faðmi tengdafjölskyldunnar um áramótin og gerði ekkert... það var indælt.
Byrjaði að vinna hjá Símanum og ég ELSKA ÞAÐ. Það er best í heimi að vinna þarna. Þó ég verði að viðurkenna að 10 vaktin mín á morgun sé ekki sú girnilegasta. En allavega þá er frábært fólk þarna og ég elska vaktakerfið þannig að ég er mjög hamingjusöm með þetta allt saman.
Ég er að fara til Spánar 22. maí með mömmu, pabba, Kristínu, Marra, krökkunum, Árna Viggó, Nínu og Jóa mínum. Ég er að deyja úr spenningi!
Ég er að fara til Spánar 6. ágúst með Jóa, Völu, Davíð og Elvari. Ég er að deyja úr spenningi!!
Mmm... sól og sumarylur.
Ég er búin að taka mjög mikilvæga ákvörðun! Ég sótti um í HR í lögfræði og ætla mér þar af leiðandi að verða lögfræðingur - vona það allavega
En mér fannst þetta allavega mjög stórt skref og ég vona bara að ég fái inn og að þetta verði meira en mikið gaman - Treysti á þig Arnar Ingi!Ég "hætti" sem sagt hjá Símanum júlí-ágúst og fer út 6. ágúst - kem heim og beint í háskólann. Úff hvar á ég að fá peninga.. mér líkar ekki við námslán - eða bara engin lán!
En þetta er ekkert sérstaklega skemmtilegt blogg. Engin pæling eða ekki einu sinni brandari eða þar af síður misheppnaður brandari.
En ég hef fundið að undanförnu að það er margt sem að mig langar að segja - margt sem ég pæli í og langar að koma á framfæri og fá ykkar skoðanir! Þannig að ég ætla að reyna að vera dugleg að blogga eitthvað skemmtilegt. Þannig að þið sem álpist til að lesa þetta megið láta það ganga að ég sé byrjuð að bogga aftur.
Afmæliskveðjur: Arnar Þór, Sævar Birgis, Sólveig Ragna, Guðrún Eik, Arna, Inga (á sunnudaginn) og örugglega einhverjir fleiri sem ég er að gleyma..
Góða nótt
Ef ég ćtti vćngiSigný Ósk Sigurjónsdóttir
þá myndi eg líklegast fljúga.
Þegar sólin kom upp kippti litli strákurinn í móður sína og leit á hana með bænaraugum, honum langaði nefnilega svoo mikið í stóru appelsínuna, móðir hans fann að nú þyrfti hún að útskýra fyrir honum gang sólarinna og mikilvægi hennar fyrir jörðina. Hún byrjaði rólega og reyndi að vera eins skiljanleg og hún gat. Þegar hún var rétt byrjuð kiptti litli strákurinn aftur í hana og sagði með pirring í röddinni að hann gæti þá bara allt eins fengið sér epli, hún þyrfti ekkert að ljúga þessu rugli að honum.
Skrítið hvað það er yndislegt þegar að maður lendir í því að þurfa að útskýra eitthvað flólkið fyrir börnum, það er samt ennþá yndislegra þegar börnin skilja hvað maður er að rugla. Maður getur nú alveg ímyndað sér hve heimskulega maður hljómar þegar maður er að reyna að segja þeim að í rauninni sé sólin ástæða þess að við erum á lífi og svo margs annars...
Jæja lömbin mín, ég flýg út í fyrramálið klukkan korter yfir níu og verð í viku. Langaði bara að segja ykkur það.. heyrumst síðar.
Ykkar Signý
ÚbbsSigný Ósk Sigurjónsdóttir
Jæja já sleppiði tómötunum! Ég stend stolt upp úr ruslahaugnum, með skökk gleraugu, það mætti jafnvel segja að tönnin mín hafi skekkst um 0,01 mm. Ef til vill rangeygð og illa lyktandi - en stolt.Já já eða það..
Hmm jájá ég ætlaði nú bara að láta ykkur vita af mér. Komin með leið á þessu rausi ef til vill en kannski ég skelli inn nokkrum örsögum eða eitthvað.
En allavega þá eru 13 dagar þangað til að ég fer til Marmaris með mínum heitt elskaða! Úff það verður gott að komast í 30 gráður og glampandi sól!! újé
Svo er skólinn bara kominn á fullt og allt að gerast, ég er búin að fara í heil 2 próf og lesa fullt af bókum og + einn fyrirlestur. Gengur líka svona vel:)
Um helgina kemur allt illa lyktandi fólk á Íslandi saman og fer í réttir.. hehe ekki taka þessu illa en ég bara verð að segja ykkur af hverju ég segi "illa lyktandi". En það er vegna þess að Þóra heyrði til "reykjavíkurstelpu" um daginn. Það var rætt um Laufskólarétt, ég nenni ekki að segja allt sem hún sagði stelpugreyið vegna þess kannski helst að það var tóm tjara. Í stórum dráttum var það þannig að við værum í lopapeysum á böllum og öll lyktuðum við af fjósalykt.. henni var þá svarað að þetta fólk færi nú í sturtu en þá kom svar til baka sem hljóðaði svo að fjósalyktin væri bara föst! Já þá vitiði það, ég skal stolt fara á Laufskálarétt og fullyrða að skagfirðingar lykta manna best! En damn það verður gaman!:D
Hafiði upplifað það að eiga hvergi heima? Að þurfa að troða sér hingað og þangað og alltaf líða eins og þið séuð bara í vitlausu húsi? Ég hef! Það er ekki gott og geriri mig áhyggjufulla. Kannski ég byggi mér kofa í kofabyggð Sauðárkróks.. já það er hugmynd.
Hef ósköp fátt að segja nema að elskiði friðinn elskurnar og knúsiði mig næst þegar þið sjáið mig, það er svo indælt að fá knús.
Takk fyrir mig
Ykkar einlæg Signý Ósk
Ellin sćkir mig heim..Signý Ósk Sigurjónsdóttir
Já sælinúÉg er viss um að nú þegar ég drattast loks til að blogga þá les þetta raus enginn og þess vegna verður þetta mjög líklega síðasta færslan mín, hér. Já skólinn er kominn á fullt og það gleður mig að tilkynna ykkur að þetta mun verða mín síðasta önn í fjölbrautaskóla, vonandi. Jámm mínar síðustu 18 einingar og mikið er ég glöð.
Ég gerði ekkert í sumar, nema vinna, fara norður, ná mér í minn kæra, vesenast með fólkinu mínu og eitthvað og eitthvað.
Í vetur verð ég að vinna í formaco, vinna í símanum - já vera í skólanum. Fara til útlanda og vinna Jóa í keilu!
Ég er veikur, ég er lítill og aumkunarverður. Ligg upp í rúmi undir tveimur sængum að horfa á Rat Race... bíð eftir að einhver komi heim og dekri við mig.
Ég drattaðist loks til sjúkraþjálfara, til hans Árna vinar míns. Ég er farin að missa vonina um að bakið mitt þyggji einhverja hjálp. Síðan ég byrjaði að fara til Árna vinar míns hef ég fengið gríðarleg höfuðverkjaköst, meira illt í bakið og horft á nálar standa upp úr bakinu á mér. En allt er þetta fyrir góðan málstað - eða ég held það. Það er margt fyndið sem ég gæti sagt ykkur um bakið mitt en mér leiðist baktal, sérstaklega þegar ég verð fyrir barðinu á því. Ha - ha ég er að kafna úr fyndni.
Já Lobbi ég veit, ég ætla ekki að verða rithöfundur!! Bendi ykkur á að ef þið viljið lesa eitthvað fyndið þá ættuð þið að lesa lobbaraus.
Denni dæmalausi er án efa besta mynd sem nokkurn tíman hefur verið gerð! Mæli eindregið með því að þið horfið á fyrstu myndina og pælið aðeins í því hve ógeðslega vel leikin hún er!
Til hamingju með afmælið Ragnhildur, Sóley, Heiða, Sunna Líf og allir aðrir sem áttu afmæli.
Til hamingju með Þóru litlu nýju frænku allir ættingar.
Jájá meira hef ég ekki að segja að sinni.
Kveð að sinni
Er Ísland ekki bara eitt stórt ćttarmót?Signý Ósk Sigurjónsdóttir
Já halló góðu lesendurÞið þarna lélegu lesendur fáið bara hævertu.
Já ég skellti mér á ættarmót síðustu helgi og það var bara mjög gaman. Fyrir utan að ég þekkti ekki neinn og einhver ættingi minn var að drepast úr pempíuskap, mér líkaði það ekki. Já þetta var bara býsna góð helgi í faðmi fjölskyldunnar en já ef ég kalla þetta að vera í faðmi fjölskyldunnar þá er ég alltaf í faðmi fjölskyldunnar. Ég meina sama hve menningarleg við reynum að vera þá eigum við bara heim á litla Íslandi og við erum öll skyld (ég segi nú ekki úrkynjuð) en já. Á þetta blessaða ættarmót vantaði alla Gunnu fjölskyldu, þeas Hjört, Sólu og Þorgeir þar sem þau eru öll einhversstaðar að spóka sig. Það vantaði líka Árna Viggó og já á meðan að ég man þá er Árni Viggó ekki á Mars, hann er hress.
Jújú nú er bara einn dagur í fríið mitt langþráða, þá legg ég upp í langferð, sem sagt að elta sólina og enda svo í firðinum góða og fer svo á Akureyri um versló, júhú.
Hlakka til að fá ykkur í heimsókn Arna og Ragnhildur og Jóa líka auðvitað.
Veriði sæl og blessuð
Sól sól skín á mig...Signý Ósk Sigurjónsdóttir
og svo..Skýský burt með þig!
Já svona lýsti þetta sér, 25 gráður í Reykjavíkinni, sól og blíða - keyrði norður á leið og hvað haldiði, þoka og kuldi dauðns. Ég sem tók ekki einu sinni með mér hlý föt, lífið er nefnilega þannig í borginni að engin þörf er fyrir hlý föt því sólin er bara búin að skína og skína og skína, sem er alveg yndislegt alveg hreint!! Já maður er sem sagt staddur hérna norðan heiða á leið á Sigfús í góða veðrinu. Reyndar er mér alveg sama vegna þess að góða fólkið er það sem skiptir máli!
Já lítið að frétta annars, nema bara gott gott og gott. Flutt upp í Grafarvog sem er alveg frábært, mamma á loksins heima einhversstaðar og allt leikur í lyndi. Þið verðið að koma og kíkka á okkur í nýja húsinu, gasalega lækkert.
Nú er ég orðin voða sybbin - eða þreytt eins og minn kæri myndi segja þannig að ég bið ykkur vel að lifa.
Gnýsi